Stór bruni í Bergen í Noregi

Frá Bergen í Noregi.
Frá Bergen í Noregi.

Slökkviliðið í Bergen í Noregi berst nú við eld í miðbæ borgarinnar. Þeim hefur ekki tekist að ná tökum á eldinum sem logar í einu húsanna. Mörg húsanna í miðbænum eru timburhús en samkvæmt slökkviliðinu er ekki lengur hætta á að eldurinn dreifi sér um bæinn.

Alls er vitað um fimm sem hafa slasast í brunanum og eru fimm sjúkrabílar á svæðinu. Ekki er vitað hversu margir eru inni í húsunum sem standa í logum. 

„Við fengum fyrst upplýsingar um að eldur kæmi út um glugga í einu húsanna og að fólk væri að flýja út um glugga hússins,“ sagði einn slökkviliðsmaðurinn í samtali við Verdens gang

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert