Grunnskólakennari tekinn af lífi

Maðurinn var tekinn af lífi. Myndin er úr safni.
Maðurinn var tekinn af lífi. Myndin er úr safni. AFP

Kínverskur grunnskólakennari, sem fundinn var sekur um að hafa nauðgað og beitt 26 stúlkur kynferðislegu ofbeldi, hefur verið tekinn af lífi. Maðurinn framdi glæpina á árunum 2011 til 2012 þegar hann kenndi í grunnskóla í landinu.

Stúlkurnar voru á aldrinum 4 til 11 ára. Nauðgaði hann tuttugu og einni þeirra og misnotaði hinar kynferðislega í kennslustofum, heimavistum og skógi við skólann. Sumum nauðgaði hann oftar en einu sinni.

BBC greinir frá

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert