Aukin sjálfsvirðing við hvert morð

James Holmes verður mögulega tekinn af lífi.
James Holmes verður mögulega tekinn af lífi. AFP

James Hol­mes, sem er ákærður fyr­ir að hefja skot­hríð í kvik­mynda­húsi í Col­orado í Banda­ríkj­un­um í júlí 2012, segist hafa öðlast aukna sjálfsvirðingu við dauða hvers og eins þeirra tólf sem létust í skothríðinni.

Þetta kemur fram í mynd­böndum af viðtöl­um geðlækn­anna William Reid og Jef­frey Metzner við Hol­mes sem birt voru kviðdómnum í gær. „Ég varð tólf sinnum meira virði en áður,“ sagði Holmes í einu viðtali við geðlæknana. „Allt sem þau höfðu áorkað í lífinu fór út úr þeim og var gefið mér.“

Hann segist þó harma dauða eins fórnarlambs síns sem var 6 ára gamalt barn þar sem áform hans hafi verið að lágmarka tölu barna sem slösuðust í árásinni. Þar af leiðandi hafi hann framið árásina á sýningu á mynd sem var bönnuð innan 13 ára, og það seint um kvöld. 

Rétt­ar­höld yfir Hol­mes hafa nú staðið fyr­ir í fimm vik­ur. Gera má ráð fyr­ir því að rétt­ar­höld­in taki um fjóra mánuði. Fyrstu vik­urn­ar fóru í vitn­is­b­urð fórn­ar­lamba Hol­mes, ást­vina þeirra sem lét­ust og lög­reglu­fólks. Nú er andleg heilsa Holmes þó í brennidepli og munu fyrrnefndir geðlæknar segja til um hvort hann hafi verið með réttu ráði þegar hann framdi glæp­inn sem er eitt versta fjölda­morð í sögu Banda­ríkj­anna.

Annar geðlæknirinn, Reid, hefur þegar lýst því yfir að Holmes hafi verið löglega heill á geði þegar hann gerði árásina. Hann hefur gert það ljóst að morðin hafi verið þess virði,“ sagði hann.

Verjendur Holmes segja hann glíma við alvarlegan geðklofa sem geri það að verkum að hann þekki ekki muninn á réttu og röngu. Þeir vilja að hann verði færður á geðsjúkrahús, en saksóknarar vilja hins vegar að hann verði dæmdur til dauða. Holmes hefur ekki gefið fulla játningu fyrir dómi.

Í myndböndunum segir Holmes að hann hafi vitað að það sem hann gerði var ólöglegt og talaði um atburðinn sem glæp. Þá hefur stílabók sem sýnir áform Holmes um árásina verið lögð fram sem sönnunargagn, en þar lýsir hann langvar­andi hatri sínu á mann­kyn­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert