Óbreyttir borgarar féllu í árás á vopnabúr

F-16 orrustuþota.
F-16 orrustuþota. AFP

Talið er að átta óbreyttir borgarar, þar af fimm börn og tvær konur, hafi látið lífið í loftárás Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra nýverið á vopnabúr vígamanna í Sýrlandi sem tengdir eru hryðjuverkasamtökunum al-Kaída. 

Fram kemur í frétt AFP að samkvæmt upplýsingum frá mannréttindasamtökunum Syrian Observatory for Human Rights hafi 18 manns týnt lífi í árásinni þar af tíu vígamenn. Búðir fyrir flóttamenn séu í nágrenni vopnabúrsins en þær hafi ekki orðið fyrir árás. Hins vegar hafi komið á óvart að nokkrir óbreyttir borgarar hafi komið sér fyrir skammt frá því.

Mikil sprengin varð þegar vopnabúrið varð fyrir árásinni en þar voru meðal annars framleidd fallbyssuskot og eldflaugar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert