Frans páfi flaug á hausinn

Frans páfi datt fram fyrir sig er hann var að ganga upp að altari við athöfn í Póllandi. Hann var þó fljótur á fætur og virtist ekki hafa orðið meint af fallinu.

Páfinn er 79 ára og fæddur í Argentínu. Er hann datt hljóp hópur fólks honum til aðstoðar. Talsmaður Vatíkansins segir að allt sé í lagi með páfann eftir fallið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert