Fann lík í nýja húsinu sínu

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Maður sem keypti nýverið hús, og gaf parinu sem þar bjó 30 daga frest til að flytja út, fann lík í rúmi í húsinu er hann kom þar við fyrir nokkrum dögum.

Húsið stendur við Anastasia Avenue í Simi-dalnum í Kaliforníu. Maðurinn hafði staðið fyrir utan húsið og bankað. Enginn hefði hins vegar komið til dyra og ákvað hann þá að fara inn. Sér til mikillar skelfingar fann hann lík í rúmi í einu svefnherbergjanna. Um var að ræða lík 84 ára gamals karlmanns og hafði hann verið skotinn til bana. Lögreglan hefur handtekið konu hans sem er 75 ára og ákært fyrir morð.

Sú gamla gæti átt yfir höfði sér fimmtíu ára fangelsisdóm. Hún hefur játað að hafa skotið mann sinn til bana eftir rifrildi þeirra á milli. 

Ekki er vitað hversu lengi líkið lá í rúminu áður en það fannst. 

Frétt Washington Post um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert