60 látnir í sjálfsvígsárás

Að minnsta kosti 60 létust í sjálfsvígsárás í þjálfunarbúðum hersins í næststærstu borg Jemen, Aden. 29 særðust í árásinni.

Árásarmaðurinn ók bifreið sinni inn í hóp nýliða í þjálfunarbúðunum og sprengdi sig upp í bifreiðinni.

Fjölmargar árásir hafa verið gerðar í borginni undanfarin misseri en yfirleitt hafa liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda og Ríki íslams staðið á bak við þær. Ekki er vitað hvort svo var núna.

Sprengjutilræði eru mjög algeng í Jemen og eru það mjög …
Sprengjutilræði eru mjög algeng í Jemen og eru það mjög oft liðsmenn al-Qaeda eða Ríki íslams sem eru þar á ferðinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert