Friðrik Danakonungur og Mary drottning héldu í dag í opinbera heimsókn til Stokkhólms. Er þetta fyrsta opinbera heimsókn þeirra eftir að Friðrik tók við konungstign af Margréti Þórhildi móður sinni í byrjun ársins.
Fjöldi fólks var samankominn við Skeppsbron í Stokkhólmi þegar dönsku konungshjónin komu þangað siglandi. Karl Gústaf Svíakonungur, Silvia drottning, Viktoría krónprinsessa Svía og Daníel prins tóku á móti þeim og þau gengu síðan til konungshallarinnar sem er þar skammt frá.