Góðhjörtuð stúlka fær nýtt hjarta

Einlæg gleði og þakklæti skín úr augum Macey.
Einlæg gleði og þakklæti skín úr augum Macey.

Fjórtán ára stúlka sem fæddist með alvarlegan hjartagalla sem var farinn að hafa alvarleg áhrif á heilsu hennar gat ekki dulið gleði sína og þakklæti er móðir hennar færði henni þær fréttir að hún væri að fá nýtt hjarta.

Bandaríska stúlkan Macey Wright hafði verið á biðlista eftir hjarta um skeið. Síðustu mánuði hefur heilsu hennar hrakað ört og var óttast að hún fengi alvarlega hjartabilun. Í lok ágúst fékk móðir hennar svo símtal frá sjúkrahúsinu. Biðin var á enda.

Móðir Macey, Patrice Wright, fangaði augnablikið þegar hún færði dóttur sinni fréttirnar. Myndskeiðið má sjá hér að neðan en það hefur síðustu daga birst í fjölda fjölmiðla um heim.

„Ég vildi sýna vinum og vandamönnum hversu meiriháttar þetta símtal var fyrir okkur,“ segir móðirin um myndskeiðið, en fjölskyldan býr í Salt Lake City. „Hún er nokkuð viðkvæm og góðhjörtuð stúlka, ég vissi ekki að hún myndi bregðast svona við!“

Macey er nú komin á sjúkrahús og er í undirbúningsmeðferð fyrir hjartaígræðsluna. Hún stendur sig eins og hetja, eins og lesa má um á Facebook-síðunni hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert