Kóalabjörn með fiðrildi á trýninu

Björninn var mjög forvitinn er hann sá fiðrildið.
Björninn var mjög forvitinn er hann sá fiðrildið. Skjáskot/Youtube

Hvað er krúttlegra en lítill kóalabjörn? Svarið er: Kóalabjörn með fiðrildi á trýninu.

Starfsmenn Symbio villidýragarðsins í New South Wales í Ástralíu voru að fylgjast með litlum kóalabirni að leika sér er fiðrildi settist skammt frá honum. Björninn varð mjög forvitinn og eftir smá stund hóf fiðrildið sig til flugs og lenti á trýni hans.

Myndskeiðið má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert