Eldur braust í dag út í flóttamannabúðunum í Calais í Frakklandi. Búðirnar eru oftast kallaðar frumskógurinn, en frönsk yfirvöld eru þessa dagana að rýma þær. Í gær braust einnig út eldur.
Yfirvöld segja að sprengihætta sé í búðunum þar sem flóttafólkið, sem nú hefur flest ýmist verið flutt til Bretlands eða komið fyrir í flóttamannamiðstöðvum víða um Frakkland, skildi m.a. eftir gaskúta sem hætta er á að springi.
Í gær hófust frönsk yfirvöld handa við að rífa niður tjöld og kofa sem reistir hafa verið í frumskóginum.
Í dag stígur þykkur, svartur reykur til himins upp frá búðunum. Þar eru enn um 4.000 flóttamenn.
„Þið verðið að fara!“ hrópar starfsmaður mannúðarsamtaka til flóttafólks í nágrenni eldsins. „Þið eruð með gaskúta í hjólhýsunum ykkar, færið þá burtu!“