Pútín hóf herferð til stuðnings Trump

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði herferð tölvuinnbrota og hagræðingar fjölmiðlaumfjöllunar, sem beindist að forsetaframboði Hillary Clinton. Þetta segir í nýbirtri skýrslu frá yfirmanni njósnamála hjá Bandaríkjunum.

Fram kemur í skýrslunni að Pútín hafi einnig látið herferðina styðja við og styrkja framboð Donalds Trump, nú verðandi Bandaríkjaforseta.

„Við teljum að Pútín hafi skipað fyrir um herferð til að hafa áhrif á bandarísku forsetakosningarnar. Markmið Rússlands voru að grafa undan trausti almennings á lýðræði Bandaríkjanna, sverta mannorð Hillary Clinton og skaða möguleika hennar til þess að verða kjörin forseti,“ segir í skýrslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert