Skutu 33 flóttamenn til bana

AFP

Að minnsta kosti 33 sómalskir flóttamenn, karlar, konur og börn, voru skotnir til bana á Rauðahafi í gær, samkvæmt upplýsingum frá Jemen.

Lík flóttafólksins voru flutt í líkhús sjúkrahúss í hafnarborginni Hodeida, sem er undir yfirráðum uppreisnarmanna síja-húta. Að minnsta kosti 35 flóttamenn særðust í árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert