„Facebook-morðinginn“ allur

Steve Stephens.
Steve Stephens. Ljósmynd/Lögreglan í Cleveland

„Facebook-morðinginn“ Steve Stephens skaut sig til bana í dag eftir stutta eftirför lögreglu. Stephens var grunaður um að hafa skotið Robert Godwin til bana í Ohio á sunnudag, þegar hinn 74 ára afi var á leið heim eftir hádegisverð.

Stephens, 37 ára, birti myndskeið af morðinu á Facebook og sagðist í öðru myndskeiði hafa myrt 13 og vera að leita að fleirum til að myrða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert