Karlotta 2 ára á morgun

Afmælisbarnið þykir líkjast langömmu sinni, drottningunni.
Afmælisbarnið þykir líkjast langömmu sinni, drottningunni. Ljósmynd/Katrín Middleton

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Middleton, hertogahjónin af Cambridge, hafa birt mynd af dóttur sinni Karlottu til að marka 2 ára afmæli prinsessunnar á morgun. Á myndinni sést Karlotta utandyra við Anmer Hall, heimili fjölskyldunnar í Norfolk.

Í yfirlýsingu frá Kensington-höll, heimili hertogahjónanna í Lundúnum, þakka þau allar kveðjur sem þeim hafa borist og segjast vonast til þess að allir njóti myndarinnar af Karlottu jafnmikið og þau gera.

Myndina af prinsessunni tók móðir hennar.

Þessi mynd af Karlottu var meðal fjögurra mynda sem fjölskyldan …
Þessi mynd af Karlottu var meðal fjögurra mynda sem fjölskyldan birti í tilefni 1 árs afmælis prinsessunnar. Ljósmynd/Katrín Middleton
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert