Trump fær steik með tómatsósu

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Það verður séð til þess að Donald Trump fái uppáhaldsmatinn sinn og að hann fái tíma á hverjum degi til að hvíla sig í fyrstu opinberu heimsókn sinni til útlanda sem forseti Bandaríkjanna.

Opinbera heimsóknin hófst í Sádi-Arabíu á föstudag en Trump mun ásamt eiginkonu sinni, Melaniu Trump, einnig heimsækja Ísra­el, Vatíkanið, Palestínu, Brus­sel og Sikileyjar.

Trump átti að fá uppáhaldsmatinn sinn í Sádi-Arabíu; steik með tómatsósu. Auk þess átti hann að fá hefðbundinn mat heimamanna.

Starfsmenn forsetans hafa varið talsverðum tíma í að skipuleggja daga forsetans þannig að hann geti slappað eitthvað af á hverjum degi í níu daga ferðinni.

Þetta er í fyrsta skipti síðan Trump tók við sem forseti sem hann eyðir nótt fjarri Hvíta húsinu. 

Frétt Independent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert