Leitin geti tekið fjóra mánuði

AFP

Leit að fórnarlömbum eldsvoðans í Grenfell-turni í London í júní gæti tekið fjóra mánuði til viðbótar. Talið er að um 80 manns hafi látið lífið en óvíst er hvort unnt verði að bera kennsl á þá alla.

Sky News greinir frá þessu.

Tólf lögreglumenn sem sérhæfa sig í því að bera kennsl á fólk eftir hamfarir vinna nú í byggingunni ásamt 24 leitarsérfræðingum og sex fornleifafræðingum. Er þeim skipt í fjóra til sex hópa sem vinna þriggja tíma vaktir. 

Alistair Hutchins, varðstjóri hjá bresku lögreglunni, hefur beðið aðstandendur að sýna þolinmæði.

Að því er fram kemur í frétt Independent bjuggu 350 manns í húsinu en 14 voru ekki heima þegar eldurinn kviknaði. Yfir 250 lifðu eldsvoðann af.

Flest­ir þeirra sem eru látn­ir eru sagðir hafa orðið inn­lyksa í 23 af þeim 129 íbúðum sem voru í há­hýs­inu. Alls lagði elds­voðinn 151 heim­ili í rúst, flest þeirra voru í Gren­fell-turn­in­um sjálf­um en nokk­ur í nær­liggj­andi hús­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert