Stjórnarskrárdómstóll í Madrid ákvað í dag að leggja allt að 12 þúsund evra dagsektir á sex embættismenn Katalóníu fyrir hvern þann dag sem þeir vinna að skipulagningu þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. 16 aðrir embættismenn gætu fengið 6 þúsund evra dagsektir. BBC greinir frá.
Rúmlega tíu embættismenn hafa verið handteknir en hafa enn ekki verið færðir fyrir dómstól í Barcelona. Aðskilnaðarsinnar hafa mótmælt fyrir utan dómstólinn.
Frétt mbl.is: Rafmagnað andrúmsloft í Barcelona
Stjórnarskrárdómstóllinn sagði í dag að þjóðaratkvæðagreiðslan væri ólögleg en aðstoðarforseti Katalóníu hefur lýst því yfir að kosningarnar fari fram ef það verður mögulegt.
Frétt mbl.is: Barið í búsáhöld í Barcelona