Borgarstjóri vottar samúð sína

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent samúðarkveðju til Carolyn G. Goodman, borgarstjóra í Las Vegas, vegna voðaverksins þar í nótt. 

„Fyrir hönd allra Reykvíkinga vil ég votta þér mína dýpstu samúð vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað í Las Vegas í nótt. Hugur okkar er hjá fórnarlömbunum, íbúum Las Vegas og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna þessara óskiljanlegu voðaverka.“ Þetta kemur fram í tilkynningu sem borgarstjórinn sendi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert