Vilja fund vegna efnavopnaárásar

Að minnsta kosti 70 eru taldir hafa farist í efnavopnaárás …
Að minnsta kosti 70 eru taldir hafa farist í efnavopnaárás í Sýrlandi. AFP

Níu lönd hafa óskað eftir neyðarfundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á morgun, mánudag, vegna efnavopnaárásar í Sýrlandi sem talin er hafa orðið að minnsta kosti 70 manns að bana í borginni Douma í Ghouta-héraði.

Það voru Frakkar sem höfðu frumkvæði að því að óska eftir fundi, en Bandaríkin, Bretland, Kúveit, Svíþjóð, Pólland, Perú, Holland og Fílabeinsströndin hafa fylgt í kjölfarið, að því er AFP-fréttastofan hefur eftir heimildamanni. Er þess krafist að fundað verði klukkan sjö annað kvöld, en ekki hefur formlega staðfest að það gangi eftir.

Yf­ir­völd í Sýr­landi og Rússlandi neita því að efna­vopna­árás hafi átt sér stað, en fjöldi ljós­mynda og mynd­banda frá vettvangi, sem dreift hefur verið á sam­fé­lags­miðlum og frétta­veit­um, bera merki þess að slík árás hafi átt sér stað.

Rússar, bandamenn Sýrlendinga, eiga fast sæti í öryggisráðinu ásamt Frökkum, Bandaríkjamönnum, Bretum og Kínverjum, en ráðið hefur reglulega fundað um ástandið í Sýrlandi síðan stríðið hófst árið 2011.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert