Fallið frá messuhaldi

AFP

Kaþólska kirkjan á Sri Lanka hefur ákveðið að aflýsa messuhaldi á sunnudag vegna ótta við nýja hryðjuverkaárás.

Að sögn talsmanns kirkjunnar hafa borist upplýsingar um mögulegar árásir á tvær kirkjur á sunnudag og því hafi verið tekin ákvörðun um að aflýsa messum kaþólsku kirkjunnar á Sri Lanka. 

Ekki hafa verið haldnar messur í kirkjum þar í landi frá því á páskadag er árásir voru gerðar á þrjár kirkjur og á þremur hótelum. Alls létust 257 í hryðjuverkaárásunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert