Ræðir Skripal-málið við Pútín

AFP

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að nota tækifærið á fundi leiðtoga G-20-ríkjanna sem hefst í dag til þess að ræða augliti til auglitis við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um Skripal-málið. Þar ætlar hún að ítreka kröfu Breta um að þeir sem beri ábyrgð á því að hafa eitrað fyrir Skripal-feðginunum í Salisbury verði dregnir fyrir dóm.

May greindi frá þessu þegar tilkynnt var um fund þeirra Pútín í Osaka í Japan og virðist sem enginn sáttahugur sé í henni í garð Rússa á síðustu dögunum í embætti forsætisráðherra. 

Mennirnir kváðust vera þeir Ruslan Boshirov og Alexander Petrov, og …
Mennirnir kváðust vera þeir Ruslan Boshirov og Alexander Petrov, og líkjast mjög þeim mönnum sem breska lögreglan grunar um að hafa komið Novichok-taugaeitri fyrir á útihurð Sergei Skripal. AFP

Þegar hún ræddi við blaðamenn áður en hún lagði af stað til Japan sagði hún að Bretar vildu gjarnan eiga í betri samskiptum við Rússa en til þess verði þeir að hætta að koma fram við önnur ríki líkt og þeir geri. Til að mynda líkt og gerðist á götum úti í Salisbury.

Eitrað var fyrir Sergei Skripal og Júlíu dóttur hans á götu úti í Salisbury í fyrra og síðar lést Dawn Sturgess af völdum eitrunarinnar. Tveir menn, sem talið er að starfi fyrir rússnesku leyniþjónustuna, Anatolií Chepiga og Alexander Mishkin, eru grunaðir um verknaðinn. 

Frétt Guardian

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert