„Hjálpar ekki að skella skuldinni á aðra“

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Heiko Maas utanríkisráðherra Þýskalands.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Heiko Maas utanríkisráðherra Þýskalands. AFP

„Það hjálpar ekki að skella skuldinni á aðra. Veiran þekkir engin landamæri. Við verðum að vinna náið saman gegn Covid-19.“

Þetta segir utanríkisráðherra Þýskalands, Heiko Maas, í tísti þar sem hann bregst við þeirri ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta að hætta fjárveitingum til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Trump tilkynnti þessa ákvörðun í gær og sagðist vilja að farið væri yfir það hvernig stofn­un­in hef­ði brugðist í bar­átt­unni við veiruna og reynt að hylma yfir út­breiðslu henn­ar.

„WHO brást skyld­um sínu og verður að sæta ábyrgð,“ sagði forsetinn.

Maas segir það vera eina bestu fjárfestinguna sem í boði er, að styrkja Sameinuðu þjóðirnar, og þá einkum fársveltu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, til að styðja við þróun og dreifingu veiruprófa og bóluefna.

Lögðu fram 57 milljarða króna í fyrra

Bandaríkin leggja árlega mikið fram til stofnunarinnar og nam framlag ríkisins 400 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári, sem samsvarar rúmlega 57 milljörðum íslenskra króna.

Ákvörðun Trumps, sem sakar stofnunina um að hafa sett pólitískan rétttrúnað framar aðgerðum til að bjarga lífum, hefur mætt mikilli gagnrýni.

Maas hefur áður gagnrýnt ríkisstjórn Bandaríkjanna vegna viðbragða hennar við veirufaraldrinum. Sagði hann í samtali við tímaritið Der Spiegel í síðustu viku að Bandaríkin hefðu lengi gert lítið úr veirunni.

„Það er í raun enginn ágreiningur um það, ekki einu sinni í Bandaríkjunum, að margar ráðstafanirnar voru gerðar of seint.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert