Trump náðar Manafort, Stone og Kushner

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur náðað fleiri samherja sína, þar á meðal Charles Kushner, Paul Manafort og Roger Stone.

Kushner, sem er faðir tengdasonar forsetans, Jareds Kushners, játaði fyrir dómi að hafa svikið undan skatti og haft afskipti af vitni árið 2004.

Manafort er fyrrverandi kosningastjóri Trumps og Roger Stones var ráðgjafi hans til langs tíma.

Mennirnir þrír eru á meðal 26 manns sem forsetinn náðaði, auk þess sem dómar voru mildaðir hjá þremur til viðbótar.

Áður hafði Trump náðað 15 manns og mildað dóma hjá fimm til viðbótar, þar á meðal spilltum þingmönnum Repúblikanaflokksins og öryggisvörðum sem voru dæmdir fyrir að drepa 14 íraska borgara í Bagdad árið 2007.

Charles Kushner (í miðjunni).
Charles Kushner (í miðjunni). AFP

Trump, sem hefur verið gagnrýndur fyrir að náða samherja sína, lætur af störfum í næsta mánuði og demókratinn Joe Biden tekur við.

Paul Manafort.
Paul Manafort. AFP

Mana­fort, 71 árs, var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í fyrra. Hann var sak­felld­ur fyr­ir skatta- og efna­hags­brot, fyr­ir að hafa leynt tekjum upp á milljónir banda­ríkja­dala sem hann fékk fyr­ir póli­tísk ráðgjaf­ar­störf í Úkraínu og fyr­ir ólög­leg­an áróður. 

Roger Stone.
Roger Stone. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert