Forsetafrúin: „Svona lítur Úkraína út núna“

Lík borið út úr ráðhúsinu í Karkív eftir árás Rússa …
Lík borið út úr ráðhúsinu í Karkív eftir árás Rússa í dag. AFP

„Svona lítur Úkraína út núna,“ skrifar Olena Selenska, forsetafrú Úkraínu, þar sem hún deilir myndskeiði á Instagram.

„Vegna árásar Pútíns þurfa Úkraínumenn að taka börnin sín í kjallarann á hverri nóttu og berjast við óvininn á bak við veggi eigin heimila,“ skrifar Selenska.

„Úkraína er friðsælt land. Við erum á móti stríðinu og gerðum ekki árás fyrst. En við ætlum ekki að gefast upp. Til heimsbyggðarinnar, horfið: Við erum að berjast fyrir friði í ykkar löndum líka.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert