Hamas sleppir gíslum: Komnir til Ísrael

Gíslar fluttir með bíl Rauða krossins frá Egyptalandi til Gasa …
Gíslar fluttir með bíl Rauða krossins frá Egyptalandi til Gasa í kvöld. AFP/Belal Al Sabbagh

Hryðjuverkasamtökin Hamas segjast hafa sleppt 20 gíslum, 13 Ísraelsmönnum og 7 erlendum ríkisborgurum, til Rauða krossins samkvæmt samkomulagi við Ísrael.

Skiptin áttu sér stað „í tengslum við vopnahlé af mannúðarástæðum,“ að því er segir í tilkynningu frá Hamas.

Ham­as ásökuðu Ísra­el í dag um að að hleypa ekki hjálp­ar­gögn­um inn á Norður-Gasa og brjóta þannig gegn sam­komu­lagi um fjög­urra daga vopna­hlé. Ísra­elsk stjórn­völd þver­tóku fyr­ir ásak­an­irn­ar.

Ham­as sögðu seinna í kvöld í yf­ir­lýs­ingu að þau hafi tekið vel í til­lög­ur milli­göngu­manna frá Egyptalandi og Kat­ar, sem hafi sýnt fram á lof­orð Ísra­els­hers til þess að „upp­fylla öll skil­yrði sam­komu­lags­ins“.

Yoni Asher tók í gær á móti fjögurra ára dóttur …
Yoni Asher tók í gær á móti fjögurra ára dóttur sinni og tveggja ára systur hennar sem Hamas rændi ásamt móður stúlknanna 7. október. AFP/Ísraelsher

Uppfært klukkan 21.37

Að sögn BBC er deilt um fjölda erlendra gísla sem Hamas hefur sleppt. Katar segja að gíslarnir séu fjórir en Hamas segja að þeir séu sjö.

Ekki er deilt um hversu mörgum gíslum frá Ísrael hefur verið sleppt í kvöld, alls 13.

Uppfært klukkan 21.50

Ísraelski herinn hefur staðfest að Hamas hefur sleppt úr haldi 13 gíslum frá Ísrael og fjórum öðrum frá Thailandi.

Rauði krossinn flutti gíslana yfir til Egyptalands og eru þeir nú á leið til Ísrael.

Uppfært klukkan 22.35

Gíslarnir sem hefur verið sleppt eru nú komnir á ísraelskt landsvæði að sögn ísraelska hersins. 

Fólkið verður flutt á spítala í Ísrael þar sem það fær að hitta ástvini sína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert