Hrottaleg aðkoma eftir árásir Hamas

Hrottaleg misnotkun á ísraelskum konum sem sóttu útihátíðina Supernova er …
Hrottaleg misnotkun á ísraelskum konum sem sóttu útihátíðina Supernova er nú fyrst að komast á yfirborðið, auk grófs kynferðisofbeldis í ísraelskum þorpum sem hryðjuverkasamtökin Hamas réðust á í október. AFP

Nauðganir og hrottalegt kynferðisofbeldi af hálfu hryðjuverkasamtakanna Hamas, í árásum á ísraelskri grundu þann 7. október, eru umfangsmeiri en látið var fyrst í ljós að því er ísraelskur sjálfboðaliði greinir frá í umfjöllun The Telegraph.

Haim Otmazgin var í hópi sjálfboðaliða sem söfnuðu saman jarðneskum leifum íbúa ísraelska þorpsins Be'eri sem varð einna verst undir árásum Hamas-samtakanna. Hann segir ljóst að árásirnar einkennist af kynbundnu ofbeldi.

Varað er við lýsingum í fréttinni.

Buxurnar blóðrauðar í klofinu

Otmazgin sagðist ekki hafa auga fyrir smáatriðum en hann hafi þó tekið eftir því þegar lík konu lá nærri vegkanti nærri árásarsvæði Hamas, með skotsár á höfði og brjósti. Þá hafi gallabuxur hennar verið blóðrauðar í klofinu og bolur sem hún klæddist rifinn í sundur. 

Sum sönnunargögn á borð við þessi líti nú fyrst dagsins ljós þar sem óðgagot hafi gripið um sig hjá stjórnvöldum í kjölfar árásanna. 

Aðstandendur berjast fyrir frelsum gísla sem voru teknir í árásunum …
Aðstandendur berjast fyrir frelsum gísla sem voru teknir í árásunum í október en óljóst er um ástand þeirra. AFP

Versta aðkoman á ferlinum

Lýsir Otmazgin því að sjónin sem mætti honum í Be'eri væri ein sú versta sem hann hefði séð á sínum 27 ára ferli í starfinu. Fyrst hafi hann verið sendur í hús þar sem tvö illa leikin lík af konum blöstu við honum. 

„Ég kom inn í öryggishvelfingu þar sem ég sá lík af tveimur konum sem höfðu verið skotnar í höfuðið. Í öðru herbergi kom ég að líki ungrar konu. Það hafði verið girt niður um hana og hún lá á rúminu með skotsár á höfði.“

Þá hafi hann hreinsað upp annað lík af konu sem var alveg án fata. Annað kvenmannslík hafi verið með aðskotahlut í klofi sem leit út eins og hnífur. Þegar Otmazgin var við sjálfboðastörfin var herstöð Ísraelsmanna sem tók við líkunum þegar undir miklu álagi.

Gróft ofbeldi á útihátíðinni

Þrátt fyrir að kynferðisofbeldið hafi sætt lítilli rannsókn sé ljóst að kynbundið ofbeldi hafi sett mark sitt á árásir Hamas en sannanir þess efnis hafi komið fram á yfir 7 átakasvæðum. Myndskeið af árásum Hamas sýni að konur hafi verið skotnar í klof og stungnar með nöglum þangað og í lærin.

Verstu dæmin hafi verið frá útihátíðinni Supernova, þar sem Hamas gerðu árás en myndskeið sýna hópnauðganir og Hamas-liða skera brjóstin af veislugestum með hlátur í bakgrunni.

Árásirnar hafi haft slæm áhrif á Otmazgin, sem segist vanur því að sjá lík, það komi honum ekki úr jafnvægi.

„En ég snerti ekki sígarettur á síðasta ári. Núna reyki ég þrjá pakka á dag og hef misst átta kíló.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert