Sagðir ræða vopnahlé á Gasa í París í dag

William Burns, forstjóri CIA, er sagður sækja fundinn til þess …
William Burns, forstjóri CIA, er sagður sækja fundinn til þess að semja um vopnahlé á Gasa. AFP

Samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar er fundur haldinn í París dag um vopnahlé á Gasa. Forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar sækir fundinn ásamt fulltrúum frá Egyptalandi, Katar og Ísrael.

Yfirvöld í Frakklandi hafa einnig verið í sambandi við ofangreindar þjóðir með það að markmiði að binda enda á átökin milli Ísrael og Palestínu, segja heimildir fréttastofunnar. 

Semja um lausn gíslanna

Heimildir fréttastofunnar staðfestu enn fremur umfjöllun Washington Post í síðustu viku þess efnis að Joe Biden Bandaríkjaforseti hefði beðið William Burns forstjóra CIA um að ganga að samningsborðinu til þess að semja um lausn gíslanna, sem Hamas tók í árás sinni þann 7. október, gegn vopnahléi á Gasa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert