Skvetti ætandi efni á móður og tvö börn

AFP

Fimm voru flutt á sjúkrahús og alls níu særðust þegar maður skvetti ætandi efni á fólk í suðurhluta Lundúna í gærkvöldi.

BBC greinir frá.

Lögregla var kölluð á vettvang um kvöldmatarleytið í gær þegar maður skvetti ætandi efni á konu og tvö börn þar sem þau voru í bifreið sinni í í Clapham-hverfinu.

Vitni sögðu aðkomuna hafa verið hræðilega en konan á að hafa öskrað að hún gæti ekki séð.

Þrír almennir borgarar og þrír lögreglumenn særðust við að koma fjölskyldunni til bjargar.

Samkvæmt lögreglu eru meiðsl fólksins minniháttar og verið er að rannsaka hvaða efni fólkið fékk yfir sig. Lögregla leitar hins grunaða sem sást flýja af vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert