Framkvæmdastjóri SÞ segir heiminn á barmi „óreiðualdar“

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres varar við komandi „óreiðuöld“.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres varar við komandi „óreiðuöld“. AFP/Kena Betancur

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), Antonio Guterres sagði heiminn á barmi „óreiðualdar“ á aðalfundi SÞ fyrr í dag. Þá segir hann ágreininginn innan öryggisráði SÞ aldrei hafa verið verri og segir ástandið í dag verra en á tímum kalda stríðsins. 

Versta pattstaða ráðsins

Guterres kallaði fyrr í dag eftir tafarlausu vopnahléi á Gasa í þágu mannúðar og sagði öryggisráð SÞ vera í pattstöðu:

„Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna - mikilvægasti umræðuvettvangurinn til þess að stuðla að alheimsfriði er í pattstöðu sökum stjórnmálafræðilegra og landfræðilegra deilna,“ sagði hann og bætti við að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem að upp kæmi pattstaða í ráðinu, en að „pattstaða dagsins í dag nær dýpra og vegur meir.“

Heimurinn á barmi „óreiðualdar“

Guterres sagði þá að á tímum kalda stríðsins hefðu verið öryggisvinklar sem höfðu það hlutverk að miðla í deilum stórvelda þess tíma. 

Hann sagði þá öryggisvinkla vanta í dag og vísaði til þess að heimurinn sé orðinn stærri og fjölbreyttari en hann var á tímum kalda stríðsins. 

„Heimurinn okkar er á barmi óreiðualdar,“ sagði hann og varaði við því að tímarnir framundan gætu einkennst af „ófyrirsjáanlegum allsherjarófrið, þar sem ekki verður hægt að sækja nokkurn til saka.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert