Íranir syrgja forsetann

Mohammad Mokhber nýskipaður forseti Írans situr við hlið ljósmyndar af …
Mohammad Mokhber nýskipaður forseti Írans situr við hlið ljósmyndar af Ebrahim Raisi. AFP

Æðsti klerk­ur­ Írans, Ali Khameini, hefur lýst yfir fimm daga þjóðarsorg vegna dauða Ebrahim Raisi, forseta Írans, sem fórst í þyrluslysi í gær, ásamt utanríkisráðherranum Hossein Amirabdollahian og sjö öðrum.

Ayatollah hefur skipað varaforseta landsins, Mohammad Mokhber, forseta landsins.

Ali Bagheri, sem hefur starfað sem sendiherra og ráðgjafi í þjóðaröryggismálum Írans, hefur verið skipaður utanríkisráðherra. 

Írönsk kona í Teheran, höfuðborg landsins, les um slysið í …
Írönsk kona í Teheran, höfuðborg landsins, les um slysið í dagblaði dagsins. AFP
Frá Teheran í gærkvöldi er fólk safnaðist saman og bað …
Frá Teheran í gærkvöldi er fólk safnaðist saman og bað fyrir forsetanum. AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert