Fenginn til að vinna úttekt á EES-samningnum

Eiríkur Bergmann doktor í stjórnmálafræði stækka

Eiríkur Bergmann doktor í stjórnmálafræði

Norsk yfirvöld hafa fengið  Eirík Bergmann, doktor í stjórnmálafræði, til að vinna úttekt á EES-samningnum en norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja allsherjarúttekt á stöðu EES-samningsins.

Ætlunin er að fara ofan í saumana á áhrifum samningsins fyrir norskt samfélag frá  gildistöku hans í ársbyrjun 1994.

„Hverjum steini í samskiptum Noregs, Íslands og Lichtenstein við Evrópusambandið verður velt við í viðamestu rannsókn á EES-samningnum sem fram hefur farið," segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst.

Eiríkur er forstöðumaður Evrópufræðaseturs og dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Hann mun rannsaka, fyrir norsk stjórnvöld, áhrif EES-samningsins á íslenskt samfélag og er áætlað að þeirri vinnu ljúki á næsta ári.

Háskólinn á Bifröst

Háskólinn á Bifröst

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is