Engar upplýsingar um kostnað við Baugsmál

Ekki eru nefndar tölur í svari dómsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, um hver kostnaður við rannsókn Baugsmálsins svonefnda hafi orðið.

Í svarinu segir, að Baugsmálið sé margþætt og enn til meðferðar á viðeigandi stöðum í réttarkerfinu, en niðurstöðu héraðsdóms um hluta þess hafi verið áfrýjað til Hæstaréttar og annar hluti bíði meðferðar héraðsdóms.

„Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á málinu hófst í ágúst 2002 og skiptist síðan. Í september 2003 sendi efnahagsbrotadeild hluta af málinu til skattrannsóknarstjóra ríkisins þar sem fyrir lá rökstuddur grunur lögreglu um brot gegn skattalöggjöf. Skattlagning vegna þessa hluta málsins hefur verið og er í meðferð í skattkerfinu. Sá hluti málsins sem áfram var til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild fór til meðferðar setts ríkissaksóknara.

Í árslok 2004 kærði skattrannsóknarstjóri til efnahagsbrotadeildar ætluð skattalagabrot tengd félaginu auk þess að leggja fyrir ríkisskattstjóra skattlagningu vegna kærunnar. Þessi þáttur málsins er enn til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild.

Starfsfólk efnahagsbrotadeildar hefur unnið að öllum þáttum málsins. Sérfræðivinna hefur verið unnin í málinu, þ.e. hjá efnahagsbrotadeild, skattyfirvöldum og settum ríkissaksóknara.

Yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu í sakamálum er tekið saman í lok hvers máls. Vinna starfsmanna lögreglu og skattyfirvalda við mál er aldrei tekin saman né verður hluti sakarkostnaðar sem til álita kemur að leggja á sakborninga að greiða að hluta eða öllu leyti," segir í svarinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert