Verið að lýsa viðskiptum en ekki lagabroti

Arngrímur Ísberg, héraðsdómari, vísaði í dag 1. kafla nýrrar ákæru í Baugsmálinu frá dómi en sá ákæruliður fjallar um meint auðgunarbrot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs Group, í tengslum við viðskipti með Vöruveltuna, þáverandi eiganda 10-11 verslananna. Segir dómarinn að í ákæruliðnum sé ekki lýst broti heldur viðskiptum sem kunni að hafi verið óhagstæð fyrir Baug en hugsanlega hagstæð fyrir Jón Ásgeir og aðra Arngrímur hafnaði hins vegar kröfu um að vísa frá öðrum liðum ákærunnar, 18 að tölu.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, segir að í umræddum ákærulið sé lýst viðskiptum með hlutafé í til­­tekinni verslanakeðju sem virðast hafa hafist 7. október 1998 með því að Jón Ásgeir keypti allt hlutfé í Vöruveltunni fyrir tilgreint verð. Í langri greinargerð, sem komi á eftir hinum eiginlega ákærulið, sé lýst margvíslegum viðskiptum með hlutféð og að hluta til með fasteignir. Af ákærunni verði ráðið, að þessu við­skipta­ferli hafi lokið vorið 1999 með því að Baugur hf. hafi keypt 70% hlutfjár í félaginu fyrir til­tekið verð.

Er Jón Ásgeir sakaður um að hafa beitt stjórn Baugs hf. blekkingum í auðg­un­ar­skyni með því að leyna því að hann væri raunverulegur seljandi hlutafjárins ásamt Fjár­fari ehf. og umráðamaður og stjórnandi Fjárfars. Jafnframt með því að vekja hjá stjórn Baugs þá hugmynd, að seljandi hlutafjárins ásamt Fjárfari ehf. væri Helga Gísla­dóttir en Jón Ásgeir hafði keypt allt hlutafé Vöruveltunnar af Helgu þann 7. október 1998 fyrir 1.150.000.000 krónur og var enn eigandi 25% hlutafjárins en Fjár­far eigandi 45,2% þess.

Þá kemur fram í ákærunni að Baugur hafi goldið 325 milljónum króna hærra verð fyrir hluta­féð en það sem Jón Ásgeir hafði greitt fyrir það og teljist það tjón Baugs. Jón Ásgeir og aðilar tengdir honum hafi hins vegar ekki auðgast nema um að minnsta kosti 200 milljónir króna þar eð þeir hafi haft kostnað af viðskiptunum.

Í úrskurði héraðsdóms segir að í lögum um meðferð opinberra mála komi fram hvað greina skuli í ákæru: hvert brotið sé sem ákært sé út af, hvar og hvenær það sé talið framið, heiti þess að lögum og önnur skilgreining og loks heimfærsla þess til laga og stjórnvaldsfyrirmæla, ef því sé að skipta. Til að ákæra geti uppfyllt þessi skilyrði lag­anna verði verknaðarlýsing hennar að vera þannig úr garði gerð að hvorki ákærði né dómari þurfi að vera í vafa um hvaða refsiverð háttsemi ákærða er gefin að sök. Verði að vera hægt að ráða þetta af ákærunni einni saman og skipti engu hvaða ályktanir megi draga af rann­sóknargögnum eða hvað ákærða kunni að vera ljóst vegna rannsóknar málsins. Með ákær­unni eigi þannig að leggja fullnægjandi grundvöll að málinu svo hægt sé að fella dóm á það samkvæmt því sem í ákærunni er tilgreint, enda verði ákærði ekki dæmdur fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir.

Viðskipti en ekki lagabrot
Dómurinn segir að í 1. lið ákærunnar sé aðallega lýst viðskiptum með hlutafé sem Jón Ásgeir eigi að hafa keypt og síðan selt Baugi allmörgum mánuðum síðar, án þess að láta þess getið að hann væri seljandinn. Baugur eigi að hafa greitt hærra verð fyrir hlutaféð en Jón Ásgeir greiddi. Mis­mun­urinn sé tap Baugs en verulegur hluti hans sé hagnaður Jóns Ásgeirs og til­greindra einka­hlutafélaga. Því sé ekki lýst í ákæruliðnum að Jón Ásgeir hafi haft fé af Baugi heldur verði helst ráðið af honum, að verið sé að lýsa því að Baugur kynni að hafa getað, eða hafi átt að geta, gert betri kaup ef Jón Ásgeir hefði unnið að viðskiptunum á annan veg. Verknaðarlýsing ákæru sé samkvæmt þessu ekki lýsing á fjársvikum heldur við­skiptum sem kunni að hafi verið óhagstæð fyrir Baug en hugsanlega hagstæð fyrir Jón Ásgeir og aðra. Ákæran sé því að þessu leyti ekki í samræmi við framangreint ákvæði c – liðar 116. gr. laga um meðferð opinberra mála.

Til vara eru Jóni Ásgeiri gefin að sök umboðssvik með því að hafa með fram­an­greindri hátt­semi misnotað aðstöðu sína sem forstjóri Baugs og komið því til leiðar að stjórn félags­ins veitti honum umboð til að binda það við kaup á mestum hluta hluta­fjár í tilteknu fyrir­tæki en með þessari misnotkun á aðstöðu hafi Jón Ásgeir og til­tekin einkahlutafélög auðgast. Segir dómurinn að í ljósi þess, að komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að í ákærunni væri ekki lýst auðgunarbroti heldur við­skiptum sem kunni að hafa verið óhagstæð fyrir Baug en hagstæð Jóni Ásgeiri, sé ákæran því að þessu leyti heldur ekki í samræmi við lög um meðferð opinberra mála.

Ákæru ekki vísað frá í heild
Verjendur Jóns Ásgeirs og Tryggva Jónssonar, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs, kröfðust þess að ákærunni yrði vísað frá í heild. Því hafnar dómarinn og segir, að ákæru­valdið hafi haft heimild til þess að gefa út nýja ákæru og verði málinu ekki vísað frá dómi af þeirri ástæðu að í lögum um meðferð opinberra mála sé ekki bein heimild til útgáfu hennar. Þá segir dómarinn, að útgáfa ákærunnar hafi ekki dregist þar sem ákært hafi verið að nýju tæpum sex mánuðum eftir frávísun fyrri ákærunnar og sé það innan hæfilegs tíma.

Verjendurnir töldu einnig að öðru lagi byggja ákærðu á því að grundvelli málsins hafi verið raskað í nýrri ákæru. Segir dómurinn m.a. að vegna þess að fyrri ákæran er ónýt sé ákæruvaldinu heimilt að orða ákæruliði með öðrum hætti enda sé nýtt mál lagt fyrir dóm­stól­inn þótt byggt sé að langmestu leyti á sömu rannsókn og eldra málið.

Þá töldu verjendur að verulegir gallar væru á rannsókn málsins. Dómurinn segir, að eftir að ákæra hafi verið gefin út hvíli sú skylda á dómara að kanna hvort einhverjir þeir gallar séu á málatilbúnaði ákæruvaldsins að varðað gætu frávísun. Þessi athugun, jafnvel þótt hún leiddi í ljós galla og hvort sem ákæruvaldið bætti úr þeim eða ekki, bindi ekki hendur dóm­arans. Hann geti hvenær sem er eftir þingfestingu vísað máli frá dómi, þótt engin krafa komi fram um það, ef hann telji svo bersýnilega ann­marka vera á málinu að ekki verði úr þeim bætt undir rekstri þess.

„Settur ríkissaksóknari hefur metið gögn málsins samkvæmt nefndri lagagrein, lokið rann­sókn þess og tekið ákvörðun um útgáfu ákæru. Meðferð málsins hingað til hefur ekki leitt í ljós neina þá meinbugi á lögreglurannsókn þess að varðað gætu frá­vísun af þeim sökum. Það girðir hins vegar ekki fyrir að til frávísunar geti komið á síðari stigum, komi eitt­hvað í ljós við meðferð málsins fyrir dómi sem ekki verði bætt úr, sbr. tilvitnað ákvæði," segir í úrskurðinum.

Verjandi Jóns Geralds Sullenbergers krafðist frávísunar á þeim ákæruliðum sem að Jóni Gerald snéri á þeirri forsendu, að sak­sóknari við embætti ríkislögreglustjóra hafi með bréfum 14. október og 20. desember 2005 lýst því yfir að ákvörðun hafi verið tekin um að gefa ekki út ákæru á hendur honum. Í úrskurði héraðsdóms segir m.a., að ekki sé hægt að líta á þessi bréf og framburð saksóknarans sem tilkynningu um að fallið hafi verið frá sak­sókn enda hafði Jón Gerald þá ekki stöðu sak­born­ings og þessum tilkynningum var ekki beint til hans. Ákæruvaldið hafi þannig hvorki fellt niður mál á hendur Jóni Gerald né fallið frá saksókn á hendur honum og því standi ákvæði laga um meðferð opinberra mála ekki í vegi að settur ríkis­sak­sóknari ákæri hann.

Úrskurður Héraðsdóms

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi til sölu
TEC 690 hjólhýsi til sölu árgerð 2005, næsta skoðun 2013. Auka rafgeymir - eldav...
Cavalier King Charles Spaniel til sölu Frábærir fjölskyldu hundar
Erum með yndislega Cavalier til sölu Afhendast heilsufarsskoðaðir örmerktir og æ...
20" barnareiðhjól til sölu
Til sölu 20" Mongoose Rockadille barnareiðhjól. Mjög vel með farið í toppstandi ...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...