Hætta við ritaraframboð og hvetja til stuðnings við Sæunni

Sæunn Stefánsdóttir
Sæunn Stefánsdóttir

Kristinn H. Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson hafa báðir hætt við framboð til ritara og hvetja þeir báðir flokksþingið að kjósa Sæunni Stefánsdóttur í embætti ritara. Segja þeir báðir nauðsynlegt að kona sé í framvarðasveit Framsóknarflokksins og því vilji þeir að þeir sem eru á kjörskrá kjósi konu. Tveir eru því í framboði til ritara: Haukur Logi Karlsson og Sæunn Stefánsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka