Íslendingasagnaútgáfan hefur keypt tímarit Fróða

Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson

Íslendingasagnaútgáfan gekk í dag frá kaupum á öllum tímaritum Tímaritaútgáfunnar Fróða ehf. Kaupin ganga formlega í gegn 1. september. Kaupverð er ekki gefið upp. Að Íslendingasagnaútgáfunni standa m.a. Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, útgáfufélags Blaðsins, Mikael Torfason, aðalritstjóri Fróða, Elín Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fróða og Marteinn Jónasson, sölustjóri.

Í tilkynningu segir, að Íslendingasagnaútgáfan muni halda áfram útgáfu allra tímarita Fróða. Búið sé að kynna eigendaskiptin fyrir starfsfólki útgáfunnar og verði öllum boðið að vinna áfram að útgáfu tímaritanna. Starfsemin mun verða áfram til húsa að Höfðabakka 9 fyrst um sinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert