365 miðlar einbeita sér á prentsviði að útgáfu Fréttablaðsins

365 miðlar hafa endurskipulagt prentútgáfu sína með það að markmiði að skerpa áherslur og auka arðsemi í rekstri 365. 365 miðlar munu á prentsviðinu einbeita sér að útgáfu Fréttablaðsins og fylgirita þess, en útgáfa annarra sjálfstæðra prentmiðla flyst annað, eftir atvikum með aðild 365.

Í tilkynningu segir, að þetta sé hluti af þeirri stefnumörkun, að efla kjarnastarfsemi 365 á sviði dagblaðaútgáfu, sjónvarps, útvarps og vefmiðlunar og stefna að forystuhlutverki á þeim sviðum miðlunar þar sem 365 starfar.

Útgáfuréttur á DV hefur verið seldur til Dagblaðsins-Vísis útgáfufélags ehf. 365 mun eiga 40% í þessu félagi, sem tekur við útgáfunni 1. janúar, en Hjálmur ehf. er eigandi að 49% hlut í félaginu. Aðrir eigendur eru feðgarnir Janus Sigurjónsson og Sigurjón M. Egilsson.

Tímaritin Hér & nú og Veggfóður hafa verið seld til Útgáfufélagsins Fögrudyra ehf., sem gefur út tímaritið Ísafold. Aðaleigandi Fögrudyra, Hjálmur ehf., mun jafnframt kaupa af 365 miðlum hlut í tímaritinu í Bístró, sem verður þá nokkurn veginn að jöfnu í eigu 365, Hjálms og starfsmanna Bístró.

Tímaritið Birta verður samhliða þessum breytingum fellt inn í Fréttablaðið á nýju ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert