Samhæfðar aðgerðir til að lækkun á matvælaverði skili sér til neytenda

Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra kynnti samkomulagið
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra kynnti samkomulagið mbl.is/Ásdís

Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, hefur gert samkomulag við Alþýðusamband Íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um eftirfylgni með aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar á matvælaverði. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga að leiða til 14-16% lækkunar á matvælalið vísitölu neysluverðs að viðbættri veitingaþjónustu. Mikilvægt er að lækkunin skili sér að fullu til neytenda í lægra matvælaverði, að því er fram kom á blaðamannafundi.

Fylgst verður náið með breytingum á verðlagi og reynt að tryggja það að almenningur sé vel upplýstur um breytingarnar, að sögn Jóns.

Lögð er rík áhersla á að almenningur taki virkan þátt í verðlagseftirliti til að tryggja það að framkvæmd þeirra kjarabóta sem felast í aðgerðunum skili sér.

Þann 9. október 2006 kynnti ríkisstjórnin aðgerðir til að lækka matvælaverð á Íslandi. Markmiðið með aðgerðunum er að matvælaverð verði sambærilegt við meðalverð á matvælum á Norðurlöndunum eftir að breytingarnar taka gildi, 1. mars n.k.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert