Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Þorkell

Sextán ára gamall piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Til frádráttar refsingu komi gæsluvarðhald ákærða sem hann hefur sætt frá 5. september 2006. Pilturinn veittist að karlmanni, vopnaður hnífi, á bifreiðastæði við Skautahöllina, Engjavegi 6 í Reykjavík.

Mennirnir höfðu kynnst á netinu en pilturinn greindi frá því við yfirheyrslur að hann hefði farið inn á netið til að kynnast manni með það í huga að drepa einhvern. Hann hafi reynt að kynnast samkynhneigðum manni þar sem auðveldara væri að fá að hitta slíkan mann.

Pilturinn skýrði frá því að hann hefði hitt manninn þrisvar. Fyrst við heimili ákærða þar sem þeir hefðu rétt talað saman. Síðan hefði hann farið kvöldið áður á rúntinn með manninum og hann tekið hnífinn með sér til að drepa hann. Þeir hefðu ekið í Laugardalinn og stoppað við Skautahöllina og þar hafi hann farið út að reykja. Þá hafi maðurinn farið út að kasta af sér vatni. Hann hefði þá læðst aftan að manninum og stungið hann í bakið. Kvað hann manninn hafa litið við og hann þá tekið á rás og hlaupið burt. Hann hefði gengið að heimili sínu og séð þar lögreglu og reynt að koma sér undan handtöku.

Aðspurður sagði hann það hafa verið sinn vilja og að sig hafi langað til að prófa að drepa og maðurinn hafi verið sá fyrsti sem hann fann.

Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að pilturinn sætti geðrannsókn á rannsóknarstigi málsins og síðan voru dómkvaddir matsmenn kvaddir til að framkvæma geðrannsókn á piltinum og meta sakhæfi hans. Samkvæmt niðurstöðu þeirra er pilturinn sakhæfur. Matsmennirnir telja hins vegar að refsing geti ekki borið árangur. Er það rökstutt í fyrsta lagi með því að þrátt fyrir að refsing hafi vissan fælingarmátt sé sá þáttur þegar kominn fram með gæsluvarðhalds­vist hans. Í öðru lagi muni fangelsisrefsing ekki bjóða upp á þá meðferð sem pilturinn þurfi á að halda og í þriðja lagi sé hætta á því að samvist við fanga í fíkniefnum og afbrotum hafi skaðleg áhrif á ómótaðan huga hans.

Í matsgerðinni er gerð grein fyrir því að pilturinn eigi við málþroskaröskun að stríða og hafi átt í námserfiðleikum og erfiðleikum í félagslegum samskiptum. Hann virðist hafa átt fáa vini og orðið fyrir einelti, þó hann hafi sjálfur gert lítið úr slíku. Þá hafi hann einangrað sig frá fjölskyldu sinni og verið í litlum tengslum við hana. Hann hafi haldið sig inni í herbergi sínu og nánast aldrei borðað með fjölskyldu sinni frá 14 ára aldri.

Pilturinn á að baki minni háttar sögu um afbrot, innbrot og þjófnaði. Niðurstöður greindarprófs sýna heildartölu greindar 73 stig. Samkvæmt matsgerðinni telst þetta vera jaðargreind og á jaðri þess að um fötlun vegna greindarskerðingar sé að ræða. Hins vegar rúmast það innan meðalgreindar sem er allt frá 70 til 130 stigum. Þá greinist pilturinn með nokkur einhverfueinkenni en uppfyllir ekki greiningarskilmerki fyrir einhverfu. Hann greinist með hegðunarröskun. Í matsgerðinni segir að það sé áhyggjuefni að verknaður piltsins sé án sjáanlegs tilgangs, þótt reynt hafi verið að varpa ljósi á hvatir hans með vísan til þessara andlegu annmarka, og atvikið sé í raun óskiljanlegt. Hann hafi ekki sýnt nein veruleg merki iðrunar en ætli ekki að gera svona aftur vegna frelsisskerðingarinnar, að því er segir í dómsorði héraðsdóms.

Pilturinn er fæddur árið 1990. Segir í dómi héraðsdóms að við ákvörðun refsingar verður að líta til þess hversu ungur hann er að aldri. Samkvæmt sakavottorði hefur hann ekki áður sætt refsingu. Þá hefur hann játað brot sitt og skýrt hreinskilnislega frá atvikum. Er þetta virt honum til refsilækkunar. Á móti kemur að hann hefur gerst sekur um fólskulega tilraun til manndráps. Atlaga hans var stórhættuleg og hending ein að ekki hlaust bani af. Hefur verknaðurinn haft miklar afleiðingar á líf fórnarlambs hans. Aðdragandi brots piltsins ber vott um einbeittan brotavilja. Hann hefur ekki alveg getað útskýrt hvatir sínar að baki verknaðinum og af hverju hann hafi langað til að drepa mann. Fyrir dómi taldi hann að löngun sín til að drepa mann gæti tengst bíómyndum. Með geðrannsókn sem pilturinn sætti var reynt að varpa ljósi á hvað bjó að baki verknaðinum en atvikið er í raun talið óskiljanlegt. Með hliðsjón af áliti matsmanna um hagi ákærða, vanþroska hans og ungs aldurs, verður að telja að mjög löng refsing sé drengnum skaðleg. Að öllu þessu virtu og með vísan til almennra hegningarlaga þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 4 ár. Er piltinum jafnframt gert að greiða fórnarlambinu sex hundruð þúsund krónur í miskabætur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert