Í gæsluvarðhaldi vegna gruns um smygls á 4 kílóum af kókaíni

Karlmaður um fertugt, hefur verið úrskurðaður í 3 vikna gæsluvarðhald vegna smygls á tæplega 4 kílóum af kókaíni á síðasta ári. Fram kom í fréttum Útvarpsins að fíkniefnið fannst í pallbíl, sem fluttur var hingað til lands frá Cuxhaven í Þýskalandi í nóvember. Í fréttum Útvarpsins kom fram að tveir aðrir karlmenn hefðu verið handteknir vegna málsins en þeim hafi báðum verið sleppt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka