Umhverfisráðherra ESB ánægður með árangur Íslands í loftslagsmálum

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra átti í dag fund með Stavros Dimas ráðherra umhverfismála í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Á fundinum ræddu ráðherrarnir um loftslagsbreytingar og þá samninga sem framundan eru milli þjóða heims um aðgerðir gegn losun gróðurhúsalofttegunda eftir 2012, þegar Kyoto bókunin fellur úr gildi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu í dag.

Umhverfisráðherra kynnti nýsamþykkta stefnumörkun íslensku ríkistjórnarinnar í loftslagsmálum og markmið um 50-70% minnkun nettólosunar gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2050 og jafnframt hvaða leiðir ríkisstjórn Íslands leggur áherslu á að farnar verði til að ná þessu markmiði.

Stavros Dimas lýsti ánægju með nýja stefnu Íslands í loftlagsmálum og framkvæmd Kyoto bókunarinnar á Íslandi, sem hann hafði fregnað að gengi vel. Þá undirstrikaði Dimas mikilvægi þess að tækniþekking Íslendinga á nýtingu jarðhita yrði aðgengileg og nýtt sem víðast í heiminum. Það mundi gagnast vel baráttunni við loftlagsbreytingar.

Umhverfisráðherra lagði áherslu á að í samningum um aðgerðir í loftslagsmálum eftir 2012 næðist mun víðtækari samstaða ríkja um aðgerðir en væri í Kyoto bókuninni. Til að árangur næðist í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum yrðu öll iðnríki og a.m.k. stærstu þróunarríkin að taka á sig skuldbindingar og takmarkanir á losun á næsta samningstímabili.

Ennfremur lagði ráðherra áherslu á að mikilvægt væri að skoða sérstaklega sameiginleg samningsmarkmið og skuldbindingar fyrir atvinnugreinar óháð ríkjum, til þess að tryggja eftir megni að menn beiti bestu tækni alls staðar, þannig að fyrirtæki flyttu sig ekki milli ríkja til að losna undan strangari kröfum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. Stavros Dimas sagði að Evrópusambandið mundi styðja þessa nálgun í komandi samningum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert