Fjórtán doktorsnemar hljóta styrki úr Háskólasjóði

Háskóli Íslands

Háskóli Íslands mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Árið 2007 eru veittir fjórtán styrkir úr Háskólasjóði hf. Eimskipafélags Íslands til doktorsnema við Háskóla Íslands, alls að fjárhæð 75 milljónir króna. Þrjú verkefni eru styrkt til þriggja ára, níu til tveggja ára og tveir styrkir eru veittir til doktorsnema sem ljúka rannsóknum á næsta ári.

Veiting styrkja úr Háskólasjóði Eimskipafélagsins til doktorsverkefna byggist á sameiginlegri viljayfirlýsingu sjóðsins og Háskóla Íslands um að nýta sjóðinn til að styðja stúdenta í rannsóknartengdu framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Úthlutað var úr sjóðnum í fyrsta skipti á síðasta ári, til 27 verkefna, og því lætur nærri að nú stundi á fjórða tug doktorsnema rannsóknir við Háskóla Íslands með stuðningi Háskólasjóðs hf. Eimskipafélags Íslands, að því er segir í tilkynningu.

Þrjú verkefni á sviði félagsvísinda hljóta styrk að þessu sinni. Styrkhafar eru Gyða Margrét Pétursdóttir, Sigríður Sjöfn Ágústsdóttir og Úlfar Hauksson. Rannsókn Gyðu Margrétar nefnst Vinnumenning, kynjatengsl og fjölskylduábyrgð. Í umfangsmikilli rannsókn hennar eru könnuð áhrif alþjóðavæðingar og harðnandi samkeppni á vinnumenningu og félagslega merkingu vinnunnar. Leiðbeinandi hennar er Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands.

Rannsókn Sigríðar Sjafnar Ágústsdóttur fjallar um áhrif tjáningarskrifa á þá sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein á Íslandi. Leiðbeinendur eru Jakob Smári, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, og Heiðdís B. Valdimarsdóttir, prófessor við Mount Sinai School of Medicine.

Úlfar rannsakar áhrif bindandi ákvarðana alþjóðlegra stofnana á stöðu og merkingu lýðræðis, fullveldis og þjóðríkis á 21. öld, með hliðsjón af vinnumarkaðslöggjöf Evrópusambandsins. Leiðbeinandi er Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Í heilbrigðisvísindum eru veittir styrkir til fjögurra verkefna. Þá hljóta Christian Praetorius, Phatsawee Jansook, Þórunn Ásta Ólafsdóttir og Skarphéðinn Halldórsson.

Verkefni Christians – Markgen stjórnpróteinsins Mitf í litfrumum og sortuæxlum – miðar að því að greina hlutverk og starfsemi stjórnpróteinsins Mitf í þroskun litfrumna og myndun sortuæxla. Verður notuð nýleg aðferð, mótefnafelling á örflögu, til að kortleggja öll markgen Mitf-stjórnpróteinsins í erfðamengi litfrumna og sortuæxla til að reyna að finna öll geng sem Mitf stjórnar tjáningu á, í þessum frumum. Leiðbeinandi er Eiríkur Steingrímsson, prófessor í erfðafræði við Háskóla Íslands.

Rannsókn Phatsawee snýr að þróun nanótækni til lyfjagjafar í augu en viðteknar lyfjameðferðir við sjúkdómum í bakhluta auga eru áhættusamar, valda aukaverkunum og oft og tíðum árangurlitlar, þar sem erfitt er að ná fram læknisfræðilegri þéttni lyfs í bakhluta augans. Markmiðið er að ráða bót á erfiðleikum sem fylgja staðbundinni lyfjagjöf í augu og auka árangur af lyfjagjöfinni. Leiðbeinandi er Þorsteinn Loftsson prófessor í eðlislyfjafræði við Háskóla Íslands.

Þórunn Ásta hlýtur styrk til að rannsaka ónæmissvör nýburamúsa við pneumókokka- og inflúensubólusetningum. Niðurstöðum verkefnisins er ætlað að leiða í ljós nýjar blöndur bóluefna og ónæmisglæða sem verndað geta nýburamýs gegn alvarlegum sýkingum og virkni þeirra á óþroskað ónæmiskerfi nýbura verður kortlögð. Frekari þróun slíkra bóluefna til notkunar í mönnum gæti leitt til mikils hagræns ávinnings og bættrar heilsu ungbarna. Leiðbeinandi er Ingileif Jónsdóttir, dósent í ónæmisfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Þá mun Skarphéðinn Halldórsson rannsaka náttúrulegar varnir lungnaþekju. Markmið rannsóknar Skarphéðins er að skilgreina ónæmissvörun í þekju lungna, sérstaklega viðbrögð við sýkingum og lyfjum og tengir verkefnið saman grunnvísindi og klíníska læknisfræði. Leitað er leiða til þess að efla varnir lungnaþekju gegn sýkingum sem er sérlega mikilvægt á tímum alþjóðlegra faraldra, fjölónæmra sýkla og hárrar tíðni lungnakrabbameins. Leiðbeinandi er Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði við Háskóla Íslands.

Fimm verkefni á sviði verkfræði og raunvísinda hljóta styrki úr Háskólasjóði Eimskipafélagsins að þessu sinni. Styrkhafar eru Ása Guðrún Kristjánsdóttir, Marie Keiding Olivier Moschetta, Sigríður Guðmundsdóttir,og Sigurður Örn Stefánsson.

Ása Guðrún rannsakar næringu skólabarna og þætti sem ákvarða hollt mataræði þeirra. Markmið rannsóknarinnar er að stuðla að góðum og hollum matarvenjum barna í samvinnu forelda og starfsfólks grunnskóla, með nýrri þekkingu um hvernig flétta megi hollar lífsvenjur inn í daglegt líf barna. Leiðbeinandi er Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands. Rannsókn Marie Keiding snýr að aflögun, jarðskjálftavirkni og spennubreytingum á flekaskilunum á Reykjanesskaga. Nýbreytnin í verkefni Marie felst í að samtúlka gögn úr landmælingum og jarðskjálftamælingum og er vonast til að niðurstöður rannsóknarinnar megi meðal annars nýta við mat á jarðskjálftavá á Reykjanesskaga.

Rannsókn Olivier Moschetta fjallar um fjöltindalausnir í ólínulegum hlutafleiðujöfnum, en um þær gildir yfirleitt ekki hið svokallaða samlagningarlögmál, heldur tvítinda- eða fjöltindalausn að gefnum ákveðnum skilyrðum. Ætlunin er að varpa ljósi á þetta fyrirbæri með því að beita fellagreiningu. Leiðbeinandi er Robert J. Magnus, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands.

Rannsókn Sigríðar Guðmundsdóttur snýr að kennilegum rannsóknum í rafefnafræðilegum ferlum. Rafefnafræðin er mikilvægt svið innan efnafræðinnar sem fjallar um hvernig efnaorka breytist í raforku og raforka í efnaorku. Hún hefur sérstaka hagnýta þýðingu í ljósi þess að raforka verður sífellt algengara orkuform á kostnað olíu. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á gangi og hraða efnahvarfa í efnarafölum svo að hægt sé að auka nýtni efnarafala. Leiðbeinandi er Hannes Jónsson, prófessor í efnafræði við Háskóla Íslands.

Rannsókn Sigurðar Arnar Stefánssonar nefnist Þyngdarfræði í óvíxlnu rúmi. Hún snýr að helsta óleysta verkefninu í kennilegri eðlisfræði samtímans, að kanna hvernig skammtafræðin og almenna afstæðiskenningin geta samrýmst lýsingu á gerð tímarúmsins á örstuttum lengdarskölum. Leiðbeinandi er Þórður Jónsson, vísindamaður á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands.

Í ár hljóta tvær doktorsrannsóknir í hugvísindum styrki úr Háskólasjóði Eimskips. Styrkhafar eru Aleksander Wereszcynski og Theódóra A. Torfadóttir. Aleksander Wereszcynski hlýtur styrk til að rannsaka afleiðingarformgerð í íslensku. Í sögulegum hluta rannsóknarinnar verður sjónum einkum beint að uppruna og þróun „núliðinnar tíðar“ í íslensku og í samtímalegum hlutanum verður meðal annars athuguð notkun núliðinnar tíðar og orðasambandsins vera búinn að með nafnhætti í nútímamáli, einnig í máli innflytjenda. Leiðbeinandi er Jón Axel Harðarson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands.

Þá hlýtur Theódóra A. Torfadóttir styrk til að rannsaka framvinduhorf í íslensku, eðli og þróun. Markmið rannsóknarinnar er þríþætt. Í fyrsta lagi að kanna betur samspil framvinduhorfs og merkingar sagna. Í annan stað að skoða hvað breytingar á þessu samspili segja okkur um eðli framvinduhorfsins, einnig í samanburði við önnur tungumál. Í þriðja lagi er markmiðið að nýta rannsóknina til að varpa ljósi á eðli málbreytinga og hvernig þær breiðast út. Leiðbeinandi er Höskuldur Þráinsson, prófessor í íslensku nútímamáli við Háskóla Íslands.

Í stjórn Háskólasjóðs H/f Eimskipafélags Íslands sitja formaður og varaformaður stjórnar Landsbanka Íslands og bankastjóri. Stjórn sjóðsins fól sérstakri úthlutunarnefnd að fara yfir umsóknir og hún ásamt vísindanefnd Háskólans lagði á þær faglegt mat. Í úthlutunarnefnd sitja, auk varamanna, Lárus Thorlacius prófessor, formaður, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Guðmundur Þorgeirsson prófessor, Helga M. Ögmundsdóttir prófessor, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor.

Í úthlutunarreglum sjóðsins segir að um styrki til sjóðsins geti sótt stúdentar sem uppfylla inntökuskilyrði viðkomandi deildar í doktorsnám og fastráðnir kennarar eða sérfræðingar við Háskóla Íslands, sem ráðnir eru á grundvelli hæfnisdóms og uppfylla kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í viðmiðum og kröfum um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Til Leigu fallegar 2-3ja herb. íbúðir í Rvík. Rúm fyrir 2-6. Allt til alls, sæng...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
Trigano Odyssee
Til sölu Trigano Odyssee tjaldvagn árg. 2006, mjög lítið notaður. Uppl. í síma 8...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...