Úrillir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu

Það eru margir ökumenn úrillir í umferðinni.
Það eru margir ökumenn úrillir í umferðinni. mbl.is/Sverrir Vilhjálmsson

Ökumenn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvar fyrir umferðarlagabrot bregðast að sögn lögreglu við með ýmsum hætti. Flestir játa brot sitt strax en aðrir reyna að malda í móinn. Kona á fertugsaldri ók 11 ára syni sínum í skólann var stöðvuð af lögreglu því sonurinn var ekki með bílbelti. Konan tók afskiptunum illa en féllst síðan á að það væri syninum fyrir bestu að vera með bílbelti.

Svo ótrúlega vildi svo til að sama kona var aftur stöðvuð af öðrum lögreglumönnum nokkrum klukkutímum síðar.

Þá sat hún undir stýri í umferðinni og var að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað.

Ekki fer neinum sögum af viðbrögðum hennar í það skiptið en fyrir gærdaginn hafði þessi umrædda kona aldrei komið við sögu hjá lögreglu.

Hálffertugur karlmaður, sem var tekinn fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær, brást ókvæða við afskiptum lögreglu. Hann var beðinn um að setjast inn í lögreglubílinn til að gera grein fyrir sér og framvísa ökuskírteini enda hentaði veðurfar á vettvangi illa til slíkra verka utandyra.

Því neitaði maðurinn og sagði það útilokað nema að til þess kæmi að hann yrði fyrst handtekinn. Til þess kom þó ekki og maðurinn veitti umbeðnar upplýsingar að sögn lögreglu með semingi en þess má geta að hann hefur nokkrum sinnum áður verið staðinn að umferðarlagabrotum.

Annar ósáttur þegn kom inn á lögreglustöð í gær vegna þess að lögreglan hafði kyrrsett ökutæki á hans vegum. Það var flutningabifreið þar sem frágangur á farmi var ekki boðlegur og beinlínis hættulegur.

Manninum var bent á reglugerð um hleðslu, frágang og merkingu farms. Hann kynnti sér hana og yfirgaf síðan lögreglustöðina þokkalegur sáttur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert