Banaslys á Reyðarfirði

Banaslys varð laust fyrir hádegið í dag við Hjallanes á Reyðarfirði. Maður var að tengja dráttarvagn við bifreið, á geymslusvæði á Hjallanesi við Reyðarfjörð en klemmdist á milli bifreiðarinnar og vagnsins. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og lést maðurinn af áverkum þeim sem hann hlaut við slysið.

Ekki er frekari upplýsingar að hafa frá lögreglu að svo stöddu en málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert