100 milljóna halli á SÁÁ

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is
Ríkisvaldið hefur ekki gert raunhæfar tillögur til að leysa rekstrarvanda sjúkrastofnana SÁÁ, að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi. Í fyrra var halli á rekstrinum 98 milljónir króna samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi Ríkisendurskoðunar. Þórarinn sagði í samtali við Morgunblaðið í lok janúar að gjaldþrot eða niðurskurður blasti við.

Þjónustusamningur ríkisins við SÁÁ, sem rann út í desember 2005, hefur ekki enn verið endurnýjaður. Hefur Ríkisendurskoðun ítrekað mikilvægi þess að það verði gert sem fyrst. Þórarinn segir að ríkið hafi ekki lýst vilja til að „leysa málið með auknu fjármagni sem neinu nemur". Framlag til SÁÁ hafi minnkað um 40 milljónir milli áranna 2005 og 2006, sé miðað við verðlag í janúar 2007. "Það hafa heldur ekki komið tillögur um hvað heilbrigðisráðuneytið treystir sér til að kaupa af þjónustunni."

Þarf þrjá til

„Við viljum auðvitað ná þjónustusamningum," segir Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra. Hins vegar þurfi þrjá til: SÁÁ, fjármálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Eigi að leggja meira fé til SÁÁ en fjárlög geri ráð fyrir þurfi að vinna með fjármálaráðuneytinu. Ekki sé hægt, meðan samningar hafa ekki náðst, að segja til um hvort ráðuneytið óski eftir því að framlögin verði aukin. Hún segir framlög til SÁÁ hafa hækkað. Miðað við verðlag 1. janúar 2007 hafi framlögin verið 529,5 milljónir árið 2006 en 576,2 milljónir króna árið 2007.

Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið í febrúar að fram hefði komið hjá innlendum og erlendum ráðgjöfum, sem skoðað hefðu áfengismeðferð hér á landi, að lækka mætti kostnað við starfsemi SÁÁ með því að draga úr innlögnum áfengissjúkra og auka áherslu á göngu- og dagdeildir. Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri SÁÁ, segir í grein í Morgunblaðinu á laugardag, að engin haldbær rök liggi til grundvallar þessari fullyrðingu. Þórarinn Tyrfingsson segir hugmyndir Davíðs varla til umræðu á þessu stigi málsins. „Það þarf að semja um þá þjónustu sem í landinu er, síðan geta menn farið að vinna að einhverjum slíkum áherslubreytingum eða breytingum á meðferðinni til framtíðar."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert