Segja úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra hafi verið samkvæmt lögum

Landssamband eldri borgara segir nú, að fullyrðingar um að úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra hafi ekki verið í samræmi við lög hafi byggst á misskilningi. Ólafur Ólafsson, formaður sambandsins, sagði í fréttum Útvarpsins í kvöld, að ljóst sé að fjallað hafi verið um úthlutanirnar í stjórn sjóðsins og því hafi verið farið að lögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert