Áhugi fíkniefnahunds leiddi til handtöku

Fíkniefnahundur frá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli átti leið um afgreiðsluna lögreglustöðvarinnar í Keflavík og fékk mikinn áhuga á manni, sem þar var staddur. Við athugun kom í ljós að maðurinn hafi falið hassmola í öðrum sokki sínum. Hann var umsvifalaust handtekinn en var sleppt lausum að lokinni skýrslutöku.

Lögreglan í Keflavík kærði einnig í dag þrjá ökumenn fyrir meinta ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum lyfja. Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús í Höfnum í dag þar sem meðal annars var stolið tveimur fartölvum. Meintir innbrotsþjófar voru síðar stöðvaðir í Hafnarfirði og fannst þýfið í bifreið þeirra. Málið er enn í rannsók.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert