Bændablaðið opnar nýjan fréttavef

Nýr vefur Bændablaðsins, www.bbl.is, hefur litið dagsins ljós á Netinu. Þar verður fjallað um það helsta, sem er að gerast í íslenskum og erlendum landbúnaði og einnig verður fjallað um málefni landsbyggðarinnar.

Á nýja vefnum má finna ýmislegt fleira en fréttatengt efni svo sem fróðleik sem tengist íslenskum landbúnaði, hagtölur stéttarinnar og myndabanka sem hefur að geyma skemmtileg og ólík sjónarhorn úr lífi og starfi íslenskra bænda. Smáauglýsingar Bændablaðsins verða aðgengilegar á bbl.is og í verslun vefsins má finna ýmsa bókatitla, forrit fyrir bændur og hin vinsælu litaveggspjöld með íslenskum kúa-, sauðfjár- og hrossalitum.

Vefur Bændablaðsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert