Vélarvana bátur dreginn í land

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björg frá Rifi, er nú að sækja bát sem er með bilaðan gír um 24 sjómílur VNV af Rifi. Veður á svæðinu er þokkalegt að sögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar, vestan gola og ekki er talin hætta á ferðum. Einn maður er um borð í bátnum.

Björg á nú eftir rúmlega klukkustundar langa siglingu að bátnum en áætlað er að draga hann til hafnar á Rifi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert