Viðræður við Þýzkaland um öryggi og varnir

Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is
Hátt settir þýzkir embættismenn koma hingað til lands um miðjan næsta mánuð til viðræðna við íslenzk stjórnvöld um aukið samstarf í öryggis- og varnarmálum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áhugi á að Þýzkaland taki þátt í flugheræfingum hér á landi. Þýzki flugherinn hefur notað Keflavíkurflugvöll mest allra NATO-herja að Bandaríkjaher frátöldum, en í fyrra lentu þýzkar herflugvélar samtals 122 sinnum í Keflavík.

Íslenzk stjórnvöld kynntu hugmyndir sínar um aukið samstarf við önnur NATO-ríki við Norður-Atlantshaf fyrir þýzkum embættismönnum í Berlín í vetur. Áhugi kviknaði í framhaldinu hjá Þjóðverjum á auknu samstarfi við Ísland. Ekki er gert ráð fyrir að það yrði eins víðtækt og samið hefur verið um við Noreg og Danmörku. Það myndi líklega aðallega takmarkast við heræfingar.

Í sendinefndinni, sem væntanleg er hingað til lands, eru hátt settir embættismenn í utanríkis- og varnarmálaráðuneyti Þýzkalands. Þeir munu funda með starfssystkinum sínum í utanríkis-, dómsmála- og forsætisráðuneyti hér á landi.

Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert